Nokia Speakerphone HF 210 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

Farartæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif
á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum,
séu þau ekki rétt upp sett eða ekki
nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi
(með læsivörn), rafeindastýrða
hraðastýringu og loftpúðakerfi. Frekari
upplýsingar er að finna hjá framleiðanda
bílsins eða tækjabúnaðarins.

Röng uppsetning eða viðgerð kann að
valda hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga
skal reglulega úr skugga um að allur

þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu
sé rétt uppsettur og vinni rétt.
Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva,
lofttegundir eða sprengifim efni í sama
rými og tækið, hluta úr því eða
aukabúnað með því. Hafa skal í huga
að loftpúðar blásast upp af miklu afli.
Ekki koma tækinu eða fylgihlutum fyrir
á loftpúðasvæðinu.