Nokia Speakerphone HF 210 - Upplýsingar um rafhlöðu

background image

Upplýsingar um rafhlöðu

Þetta tæki er með innbyggða, fasta,
endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu, þar sem
það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað
til notkunar þegar það er hlaðið með
eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4,
AC-5, AC-8, AC-15, DC-4, DC-9 og
DC-13. Númer hleðslutækisins getur
verið mismunandi eftir klónni sem er
notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd

með einu af eftirfarandi: E, X, AR, U, A, C,
K eða B. Hægt er að hlaða og afhlaða
rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en
að því kemur að hún gengur úr sér.

Tal- og biðtími er einungis til viðmiðunar.
Raunverulegur tími ræðst til dæmis af
tækjastillingum, möguleikum sem eru
í notkun, ástandi rafhlöðu og hitastigi.

background image

ÍSLENSKA

Ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð
í langan tíma kann að vera nauðsynlegt
að tengja hleðslutækið, aftengja það
síðan og tengja það aftur til að hægt
sé að hefja hleðsluna.

Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum.

Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal
taka það úr sambandi við
rafmagnsinnstunguna og tækið. Ekki má
hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi
við hleðslutæki, þar sem ofhleðsla getur
stytt endingu hennar. Fullhlaðin rafhlaða
tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún
er ekki í notkun.

Rafhlaðan skal alltaf höfð í hita á bilinu
frá 15°C að 25°C. Of mikill hiti eða kuldi
draga úr endingu og líftíma rafhlöðu.
Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann
að hætta að starfa tímabundið.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld, þar sem
þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum
í samræmi við staðbundin lög og
reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu

þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim
með heimilisúrgangi.

Aðeins skal nota hleðslutækið til þess
sem það er ætlað. Misnotkun eða notkun
ósamþykktra hleðslutækja getur skapað
hættu á eldi eða sprengingu eða haft
aðra áhættu í för með sér, og öll ábyrgð
og samþykki sem fylgir símanum gæti
fallið niður. Ef þú telur að hleðslutækið
sé skemmt skaltu fara með það
á þjónustumiðstöð til skoðunar áður en
þú heldur áfram að nota það. Aldrei skal
nota skemmt hleðslutæki. Hleðslutækið
skal aðeins nota innandyra.

background image

ÍSLENSKA