Nokia Speakerphone HF 210 - Kveikt og slökkt á tækinu

background image

Kveikt og slökkt á tækinu

Til að kveikja ýtirðu á rofann.
Tónn heyrist í hátalarasímanum og
stöðuljósið blikkar hægt meðan
hátalarasíminn reynir að tengjast við
tækið sem var notað síðast. Þegar
hátalarasíminn er tengdur við tækið
og er tilbúinn til notkunar blikkar
stöðuljósið rólega í bláum lit. Hafi
hátalarasíminn ekki verið paraður
við neitt tæki fer hann sjálfkrafa
í pörunarstillingu.

Til að slökkva ýtirðu á rofann.
Hátalarasíminn gefur þá frá sér tón og
rauða stöðuljósið logar í stutta stund.
Hafi hátalarasíminn ekki verið tengdur
pöruðu tæki innan hálftíma er
sjálfkrafa slökkt á honum.