
Tækið tekið í notkun
Hátalarasíminn inniheldur eftirfarandi
hluti (sýndir á titilsíðunni):
hljóðstyrkstakka (1), hljóðnema (2),
svartakka með stöðuljósi (3),
klemmu (4), efri hljóðstyrkstakka (5),
rofa (6), sleppiflipa (7), hátalara (8)
og hleðslutengi (9).
Áður en hátalarasíminn er tekinn
í notkun þarf að hlaða rafhlöðuna
og para hátalarasímann við
samhæft tæki.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir.
Málmefni gætu dregist að tækinu.
Ekki má geyma kreditkort eða aðra
segulmagnaða hluti með geymsluminni
nálægt tækinu því upplýsingar sem þar
eru geymdar gætu þurrkast út.