Nokia Speakerphone HF 210 - Símtöl

background image

Símtöl

Hringt er úr farsímanum á venjulegan
hátt þegar talsíminn er tengdur við
hann. Talaðu í hljóðnema
hátalarasímans. Hámarkshljómgæði
nást þegar engir hlutir eru fyrir framan
hljóðnemann og hann er fyrir framan
þig. Bláa stöðuljósið logar meðan
á símtali stendur.

Til að hringja aftur í númerið sem
síðast var hringt í (ef farsíminn styður
þennan möguleika með hátalarasíma)
er ýtt tvisvar á svartakkann þegar
ekkert símtal er í gangi.

Til að gera raddhringingu virka
(ef síminn styður þennan möguleika
með hátalarasímanum) þegar ekkert
símtal er í gangi er svartakkanum
haldið inni í u.þ.b. tvær sekúndur.
Farðu eftir leiðbeiningunum
í notendahandbók farsímans.

Ýtt er á svartakkann til að svara
símtali. Ýtt er tvisvar á svartakkann
til að hafna símtali sem bíður.

Ýtt er á svartakkann til að leggja á.

Til að flytja símtal úr
hátalarasímanum yfir í samhæft
tengt tæki er svartakkanum haldið
niðri í u.þ.b. tvær sekúndur.